Spáð er vaxandi suðaustanátt, 10-18 metrum á sekúndu og rigningu síðdegis, en það verður hægari vindur og þurrt norðan- og austanlands.
Veður fer hlýnandi og verður hiti á bilinu 1 til 6 stig seinnipartinn.
Á morgun verða suðaustan 8-15 m/s og víða rigning. Talsverð úrkoma verður um tíma á sunnanverðu landinu, en lengst af þurrt norðaustan til. Hiti verður á bilinu 5 til 10 stig.
Búast má við suðaustan hvassviðri á sunnan- og vestanverðu landinu seinnipartinn í dag, einkum undir Eyjafjöllum og á Snæfellsnesi. Getur það verið varhugavert fyrir vegfarendur, sérstaklega ökutæki sem taka á sig mikinn vind, að því er segir í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands.