Sjálfvirk veðurstöð í Litlu-Ávík

Hákon Halldórsson setur vindmæli upp.
Hákon Halldórsson setur vindmæli upp. Ljósmynd/Jón Guðbjörn Guðjónsson

Veðurstofa Íslands setti upp sjálfvirka veðurstöð í Litlu-Ávík á Ströndum í gær, en mönnuð stöð er þar fyrir og hefur verið frá 12. ágúst 1995. Þetta segir Jón Guðbjörn Guðjónsson, veðurathugunarmaður og póstur í Árneshreppi, í fréttatilkynningu.

„Þetta þýðir ekki að veðurathugunarmaður þurfi ekkert að gera,“ ritar Jón þar enn fremur, „hann verður að taka skýjahæð og skýjasort og veðurlýsingu, hvort sé rigning, él og svo framvegis,“ skrifar Jón.

Í mörg horn að líta

Þá þurfi að kanna skyggni, mæla úrkomu og gefa upp sjólag, mæla sjávarhita og lágmarkshita við jörð, snjódýpt og fleira. Sjálfvirka stöðin sendi vindátt og vindhraða og einnig hitastig og rakastig á 10 mínútna fresti. Þetta sjái almenningar á klukkustundar fresti á síðu Veðurstofunnar.

Vilhjálmur Þorvaldsson, sérfræðingur í mælarekstri hjá Veðurstofunni, og Hákon Halldórsson …
Vilhjálmur Þorvaldsson, sérfræðingur í mælarekstri hjá Veðurstofunni, og Hákon Halldórsson settu mælana upp. Ljósmynd/Jón Guðbjörn Guðjónsson

Það voru Vilhjálmur Þorvaldsson, sérfræðingur í mælarekstri hjá Veðurstofunni, og Hákon Halldórsson sem settu mælana upp. „Stöðin byrjaði að senda rétt klukkan 16 í dag. Hún sendi klukkan 15 en þá voru vindmælar ekki tengdir, aðeins hitastig,“ segir Jón að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert