Enginn hreppti milljarðina tvo í Vikinglotto

Úrslit Vikinglotto voru kynnt í kvöld.
Úrslit Vikinglotto voru kynnt í kvöld.

Tveir Íslendingar unnu þriðja vinning í lottó í kvöld og fengu tæpar 1,7 milljónir króna í sinn hlut. Enginn vann þá rúmu tvo milljarða sem buðust sigurvegara fyrsta vinnings. Þetta varð ljóst þegar úrslit lottós vikunnar voru kunngjörð í kvöld.

Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út en þeir voru að andvirði 2.028.180.520 kr. og 20.769.340 kr.

Heppinn Jókerspilari verslaði við N1 á Hringbraut

Fyrsti vinningur gekk heldur ekki út í Jóker en tveir unnu þar einnig annan vinning og hlutu því hundrað þúsund krónur hvor. Annar þeirra sem hreppti annan vinning í Jóker verslaði miðann í útibúi N1 við Hringbraut.

Aðrir sigurvegarar í kvöld keyptu miðana sína í áksrift eða á heimasíðu Lottó.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert