Sósíalistar fordæma framgöngu ríkissáttasemjara

Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins.
Gunnar Smári Egilsson, formaður Sósíalistaflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sósíalistaflokkur Íslands fordæmir framgöngu Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara í kjaradeilu láglaunafólksins í Eflingu við samtök fyrirtækjaeigenda, þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. Þar er þess jafnframt krafist að hann víki úr embætti, eða hið minnsta úr sæti í deilum Samtaka Atvinnulífsins og Eflingar.  

„Á síðasta ári kaus ríkissáttasemjari að leggja alla áhersla á að ganga frá samningum við önnur félög en láta kjaradeilu Eflingar sitja á hakanum. Þegar Efling sætti sig ekki við þá samninga lagði sáttasemjari fram tilboð Samtaka atvinnulífsins sem sína miðlunartillögu. Freistar með því að þröngva tilboði SA upp á Eflingu.“

Taki upp tilboð annars og neyði upp á hinn

Bent er á að helstu samtök launafólks hafi lýst yfir efasemdum um lögmæti miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Lögmætið megi leggja fyrir dómstóla.

Ljóst sé þó að tillagan stangist á við hefðir í kjaradeilum og brjóti gegn hugmyndum almennings um sanngirni, „að ríkissáttasemjari taki upp tilboð annars deiluaðila og neyði það upp á hinn.“

Með miðlunartillögunni telur Sósíalistaflokkurinn að Aðalsteinn hafi misst traust launafólks. Honum beri því að draga tillögu sína til baka og segja af sér, í það minnsta víkja sem ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og SA.

Sýnir fram á vanhæfni

„Stéttabarátta láglaunafólks er mikilvæg mannréttindabarátta sem verður að fá að brjótast fram. Þetta er barátta fólks sem berst fyrir því að fá laun fyrir vinnu sína sem duga fyrir framfærslu fjölskyldna. Barátta láglaunafólks á fyrri tíð byggði upp allt það besta í samfélagi okkar í dag. Án hennar væri samfélagið mótað að öllu leyti að kröfum fjármagns- og fyrirtækjaeigenda.

Blinda ríkissáttasemjara fyrir mikilvægi kjaradeilu Eflingarfólks í dag sýnir að hann er vanhæfur til að stýra viðræðum fátæks launafólks gagnvart þeim sem það selur vinnuafl sitt.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert