Hafa heimild til að gefa út nýja ákæru

Karl Ingi Vilbergsson saksóknari.
Karl Ingi Vilbergsson saksóknari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við erum að lesa úrskurðinn yfir núna og tökum síðan ákvörðun um hvað verður, hvort hann verði kærður til Landsréttar,“ segir Karl Ingi Vilbergsson saksóknari í hryðjuverkamálinu svokallaða í samtali við mbl.is. 

Dóm­ari Héraðsdóms Reykja­vík­ur vísaði ákæru­liðum eitt og tvö frá en þeir vísa að brot­um er snúa að und­ir­bún­ingi hryðju­verka. 

Lög­menn beggja ákærðu fóru fram á frá­vís­un á þeim brot­um er snúa að und­ir­bún­ingi hryðju­verka vegna óskýrs orðalags í ákæru. 

Karl Ingi bendir á að lög heimili ákæruvaldi að gefa út nýja ákæru. Það yrði þó ekki gert fyrr en eftir úrskurð Landsréttar, ef úrskurður héraðsdóms verður kærður þangað. 

„Við erum bara núna að reyna glöggva okkur á þessum úrskurði,“ segir hann að lokum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert