Jeppi og fólksbíll rákust saman

Lögreglan að störfum á Reykjanesbraut í síðasta mánuði.
Lögreglan að störfum á Reykjanesbraut í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engin alvarleg slys urðu á fólki í umferðaróhappinu sem varð rétt sunnan við Straumsvík um sexleytið í gær.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu rákust jeppi og fólksbíll saman með þeim afleiðingum að loka þurfti Reykjanesbraut í báðar áttir.

Tilkynnt var um slysið klukkan 17.58.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert