Fimm neita sök og einn í fríi

Fimm til viðbótar mættu til þingfestingar í þriðja holli.
Fimm til viðbótar mættu til þingfestingar í þriðja holli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fimm hinna ákærðu í Bankastræti Club málinu svokallaða neituðu sök í átökum sem upp komu á Bankastræti club við þingfestingu málsins. Eru þeir allir ákærðir fyrir hlutdeild að líkamsárás og er þetta þriðja holl dagsins. Einn sem boðaður hafði verið til þingfestingar komst ekki þar sem hann var erlendis. Hafa því alls 16 mætt fyrir dóminn í dag. 

Síðasta holl dagsins kemur síðdegis fyrir dóminn og munu þrír mæta þar. Eftir það eiga sex eftir að taka afstöðu til sakargifta og munu þeir gera það í fyrirtöku síðar í vikunni.

Röð að komast að í héraðsdómi í dag.
Röð að komast að í héraðsdómi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allir sem komu í þriðja holli og neituðu sök neituðu jafnframt að staðfesta að svo stöddu að þeir hefðu verið á staðnum yfir höfuð þegar átökin áttu sér stað.   

Bauð dómari þeim sem er erlendis að taka afstöðu til sakargifta í fjarfundarbúnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert