Verktakar og ferðamenn fastir á Dynjandisheiði

Aðgerðum lauk rétt fyrir klukkan 4 í nótt.
Aðgerðum lauk rétt fyrir klukkan 4 í nótt. Ljósmynd/Landsbjörg

Í gærkvöldi voru björgunarsveitir frá Þingeyri, Flateyri og Ísafirði kallaðar út til aðstoðar fólki á Dynjandisheiði.

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að skollinn hafi verið á þreifandi bylur og skyggni hafi verið lítið sem ekkert.

Björgunarsveitarfólk fetaði sig upp á heiðina og upp úr klukkan 23 var komið að bílunum.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að skollinn hafi verið á …
Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að skollinn hafi verið á þreifandi bylur og skyggni verið lítið sem ekkert. Ljósmynd/Landsbjörg

Um var að ræða starfsmenn verktaka sem voru á leið í vinnubúðir við Mjólkárvirkjun, og ferðamenn, ásamt moksturstæki.

Fólkið var flutt í bíla björgunarsveita og um klukkan hálf tólf var haldið af stað niður af heiðinni.

Í tilkynningunni segir að ferðin hafi gengið hægt og aðstæður hafi verið mjög krefjandi, „þreifandi bylur og sama sem ekkert skyggni og bílalestin mjakaðist metra og metra í einu“.

Fólkið var flutt í bíla björgunarsveita og um klukkan hálf …
Fólkið var flutt í bíla björgunarsveita og um klukkan hálf tólf var haldið af stað niður af heiðinni. Ljósmynd/Landsbjörg

Seint í nótt kom hópurinn síðan niður af heiðinni, starfsmenn verktakans komust í hús við Mjólká, en þrír farþegar fengu far með björgunarsveit inn á Þingeyri, þar sem þeim var útveguð gisting.

Samtals voru þetta tólf einstaklingar sem voru aðstoðaðir niður af Dynjandisheiði og lauk aðgerðum rétt fyrir klukkan 4 í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert