Sá fyrsti gladdi þann nýjasta

Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands í skák og Vignir Vatnar …
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands í skák og Vignir Vatnar Stefánsson sá nýjasti í Hörpu í gær. mbl.is/Arnþór Birkisson

Skemmtileg stund var í Hörpu í gær áður en Reykjavíkurskákmótið hófst. Friðrik Ólafsson afhenti þá Vigni Vatnari Stefánssyni virðingarvott frá Skáksambandinu í tilefni þess að Vignir náði lokaáfanga að stórmeistaratitli í Serbíu á dögunum

Hittust því fyrsti stórmeistari Íslendinga í skák og sá nýjasti en Vignir er sextándi stórmeistari okkar Íslendinga. Friðrik er 88 ára gamall og varð stórmeistari árið 1958. Vignir er tvítugur að aldri og því sextíu og átta ár á milli stórmeistaranna tveggja.

Borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson lék fyrsta leik mótsins fyrir FIDE-meistarann Erdene Baasansuren frá Mongólíu. Teflir hann á móti Úkraínumanninum fræga Vasyl Ivanchuk sem er stigahæsti keppandinn en alls koma þeir frá fjörutíu og sjö löndum. kris@mbl.is

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert