Helmingur vinnandi fólks nær ekki endum saman

Helmingur vinnandi fólks nær ekki endum saman samanborið við ríflega …
Helmingur vinnandi fólks nær ekki endum saman samanborið við ríflega þriðjung í fyrra ef marka má niðurstöður spurningakönnunar sem Varða - Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins framkvæmdi meðal félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB um stöðu launafólks á Íslandi. mbl.is/Sigurður Bogi

Helmingur vinnandi fólks nær ekki endum saman samanborið við ríflega þriðjung í fyrra.

Þetta má ráða af niðurstöðum spurningakönnunar sem Varða - Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins framkvæmdi meðal félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB um stöðu launafólks á Íslandi.

Standa ekki undir óvæntum útgjöldum

Þá býr meira en helmingur einstæðra mæðra og ungra kvenna við slæma andlega heilsu og tæplega fjórðungur einstæðra foreldra við efnislegan skort. Allt að þriðjungur þeirra getur ekki greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna.

Um það bil helmingur einstæðra foreldra gæti ekki staðið undir óvæntum 80.000 kr. útgjöldum án þess að taka lán.

Vaxandi húsnæðiskostnaður íþyngjandi

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að vaxandi húsnæðiskostnaður íþyngi leigjendum og ungu fólki og almennt gefur skýrslan til kynna versnandi hag vinnandi fólks í landinu. Þá mælist staða innflytjenda markvert verri en innfæddra Íslendinga þriðja árið í röð.

Þetta er þriðja árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú, eins og segir í tilkynningu frá BSRB.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert