Andlát: Ragnar Ómarsson

Ragnar Ómarsson matreiðslumaður lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. júní síðastliðinn, á 52. aldursári.

Ragnar, sem var alltaf kallaður Raggi, fæddist í Keflavík 4. júlí 1971. Móðir hans var María Hafdís Ragnarsdóttir sem lést 1. júlí 2017 og faðir hans er Ómar Hafsteinn Matthíasson.

Á æskuárum sínum var Raggi mikill íþróttamaður. Hann var efnilegur knattspyrnumaður og spilaði til að mynda fyrir U-17 ára landslið Íslands um nokkurt skeið.

Matreiðsla átti þó hug og hjarta Ragga sem útskrifaðist frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1994 eftir að hafa lært fagið á veitingastaðnum Glóðinni í Keflavík á árunum 1989-1993. Að loknu námi starfaði Raggi sem matreiðslumaður á veitingastöðum víða um heim, meðal annars í Osló og Kaliforníu. Síðar starfaði hann sem yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti, Leikhúskjallaranum og á veitingastöðunum SALT og DOMO. Undanfarin misseri hafði Raggi nýtt sérþekkingu sína á sviði matreiðslu í að endurræsa veitingastaði víða um land og gæða þá nýju lífi.

Hæfileikar Ragga sem matreiðslumaður endurspeglast meðal annars í fjölda verðlauna sem hann hlaut á ferlinum. Hann var valinn Matreiðslumaður ársins árið 1999, Matreiðslumaður Norðurlanda árið 2003 og lenti í 2. sæti í alþjóðlegu „One World“-matreiðslukeppninni sem haldin var í Suður-Afríku árið 2007.

Þá var Raggi lengi vel lykilmaður í matreiðslulandsliði Íslands áður en hann tók við því sem þjálfari árið 2006. Með landsliðinu vann hann meðal annars til bæði silfur- og bronsverðlauna í heimsmeistarakeppninni í Lúxemborg árið 2006. Auk þess hreppti Raggi silfur- og bronsverðlaun með landsliðinu á Ólympíuleikunum í Erfurt í Þýskalandi árið 2001.

Elín Björg Þráinsdóttir, systir Ragga, minnist bróður síns með mikilli hlýju. Hún lýsir Ragga sem ásrtíðufullum kokki sem var margt til lista lagt.

Raggi lætur eftir sig tvö börn, þau Maríu Lív og Oliver Snorra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert