Skrítin staða og umhugsunarverð

Byggingamarkaðurinn er að kólna mjög hratt, að sögn Sigurðar.
Byggingamarkaðurinn er að kólna mjög hratt, að sögn Sigurðar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Staðan á húsnæðismarkaðnum er skrítin og hátt vaxtastig bítur mjög fast um þessar mundir, að sögn Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins.

Hann nefnir að sölutími hafi lengst og húsnæðismarkaðurinn kólnað, líkt og þegar hefur komið fram. Á sama tíma segir hann byggingamarkaðinn vera að kólna mjög hratt og bendir allt til mikils samdráttar í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þetta sé þvert á þarfir landsmanna, sem fjölgar um eitt þúsund á mánuði, bætir hann við, spurður út í stöðuna á húsnæðismarkaði.

Slegist um hverja lóð

„Þörfin er sennilega til staðar en það er bara ekki verið að framleiða nóg vegna þess fyrst og fremst hvað vextir eru háir. Hin skýringin er skortur á tilbúnum lóðum. Þetta fer saman. Þrátt fyrir að það sé samdráttur á byggingamarkaði og húsnæðismarkaðurinn er að kólna er slegist um hverja einustu lóð sem er í boði,” segir Sigurður.

Hann bendir einnig á að tilfærsla hafi orðið á íbúðamarkaðnum og fyrirtæki, sem langflest eru lítil eða meðalstór, reyni að færa sig frekar yfir í uppbyggingu atvinnuhúsnæðis eða húsnæðis á vegum hins opinbera.

Tölur Hagstofu Íslands sýna að gjaldþrotum fyrirtækja hefur fjölgað á þessu ári miðað við síðustu ár, auk þess sem samdráttur hefur verið í veltu hjá arkitekta- og verkfræðistofum á milli ára, að því er Sigurður nefnir.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Mjög misráðið“

Spurður kveðst hann ekki líta björtum augum á næstu misseri og segist ekki vita hvað getur snúið þróuninni við fyrir utan lækkun vaxta. Staðan sem er uppi ætti að vera umhugsunarefni fyrir stjórnvöld, sem hljóti að velta fyrir sér öllum möguleikum til að hvetja til uppbyggingar á íbúðarhúsnæði. 

Hann nefnir sem dæmi endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði sem var lækkuð fyrr á árinu. „Sú breyting hægði bara á uppbyggingu íbúðarhúsnæðis en hafði ekki áhrif á aðra hluta byggingamarkaðarins. Þetta var þess vegna mjög misráðið í þessari stöðu sem við erum í núna,” greinir hann frá.

Erfiðara að ráðast í ný verkefni

Sigurður bendir á að kostnaður við byggingu meðalíbúðar hafi hækkað um ríflega sjö milljónir króna frá miðju síðasta ári fram á mitt þetta ár, eins og kemur fram í greiningu Samtaka iðnaðarins um uppbyggingu íbúða frá því í ágúst. Þarna sé um samspil nokkurra þátta að ræða, þ.e. hærri vaxta og lengri sölutíma, hækkun virðisaukaskatts, hærra verðs aðfanga og hærri launa. Fyrir vikið eigi menn erfiðara með að ráðast í ný verkefni og slíkt hægi enn meira á íbúðaruppbyggingu, þvert á það sem þörf er á núna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert