Lögreglan rannsakar andlát sex ára barns

Andlát sex ára barns í Kópavogi er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en tilkynning um málið barst embættinu um hálfáttaleytið í morgun.

Lögreglan hélt þegar á vettvang, en barnið var látið þegar að var komið. Einn einstaklingur er í haldi vegna málsins að sögn lögreglu. 

„Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert