Kröftugra en öll síðustu gos

Eldgosið hófst kl. 20.23 í kvöld.
Eldgosið hófst kl. 20.23 í kvöld. mbl.is/Eyþór

Eldgosið sem hófst kl. 20.23 í kvöld virðist vera kröftugra en öll fyrri gos á Reykjanesskaga síðastliðin þrjú ár.

Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur í samtali við mbl.is. Hann flaug með Landhelgisgæslunni yfir gosið og lenti á Reykjavíkurflugvelli fyrir skemmstu.

Magnús Tumi flaug með Landhelgisgæslunni.
Magnús Tumi flaug með Landhelgisgæslunni. mbl.is/Árni Sæberg

3,5 kílómetrar að lengd

Magnús Tumi segir kvikuna annars vegar renna í átt að Grindavík og hins vegar að Grindavíkurvegi, sömu leið og síðasta gos. Meira rennsli sé til suðurs, það sé um 200 metra frá varnargörðunum.

Þá sé gossprungan nokkurn veginn á sama stað og þegar síðast gaus, en hún er um 3,5 kílómetrar að lengd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert