Lögreglan varar við hættulegum lyfjum

Fram kemur að nokkur dæmi séu um að lyfið Bromazolam …
Fram kemur að nokkur dæmi séu um að lyfið Bromazolam hafi fundist í málum lögreglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Að undanförnu hafa komið upp mál hjá lögreglunni þar sem vísbendingar eru um að framboð á ólöglegum lyfjum sé að aukast á svörtum markaði.

Lögreglan á Norðurlandi eystra varar við þessu í Facebook-færslu sinni og nefnir lyfið Bromazolam sem dæmi.

„Fundist hafa töflur sem líta út fyrir að vera venjuleg lyf og eru jafnvel í umbúðum sem gefa það til kynna en við rannsókn reynist svo ekki vera. Þess háttar lyf geta verið sérstaklega hættuleg þar sem að þau eru ekki framleidd af löggildum lyfjaframleiðendum og því óvíst um styrkleika þeirra,” segir í færslunni.

Fram kemur að nokkur dæmi séu um að lyfið Bromazolam hafi fundist í málum lögreglu. Það er eingöngu framleitt á svörtum markaði og því mjög varasamt. Efnið tilheyrir flokki benzódíazepínsambanda sem verka á miðtaugakerfið og hafa róandi og kvíðastillandi áhrif. Efnið var þróað um 1976 en var aldrei sett á markað.

„Helsta hættan við þessi benzódíazepínsambönd er að þau eru framleidd ólöglega og eru oft seld útlítandi sem raunveruleg lyf. En skammturinn og innihaldið getur verið breytilegt. Efnin eru sérstaklega hættuleg þegar þau eru tekin samhliða áfengi og öðrum lyfjum eins og ópíóíðum,” segir einnig í færslunni þar sem almenningur er hvattur til að upplýsa fólk í nærsamfélaginu sínu um hættur vegna slíkrar lyfjanotkunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert