Hætta flugi til Húsavíkur og Vestmannaeyja

TF-MYB, flugvél Mýflugs, á Aðaldalsflugvelli á mánudag.
TF-MYB, flugvél Mýflugs, á Aðaldalsflugvelli á mánudag. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Samningar við Mýflug/Flugfélagið Erni um flug frá Reykjavík til Húsavíkur og Vestmannaeyja verða ekki framlengdir og verður áætlunarflugi félaganna því hætt um mánaðamótin.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélögunum. Félögin munu fljúga sitt síðasta flug til Húsavíkur 1. apríl.

Vegagerðin greindi frá því í febrúar að samið hefði verið við félögin um flug til Húsavíkur og Vestmannaeyja út marsmánuð.

Dapurlegt að skortur á fjármagni hindri áætlunarflug

„Það er dapurlegt að skortur á fjármagni komi í veg fyrir áframhaldandi áætlunarflug til Húsavíkur og Vestmannaeyja. Flug til dreifðari byggða landsins verður því miður ekki starfrækt á markaðslegum forsendum. Þar þarf ríkið að koma að málum með því að líta á flugsamgöngur sem hluta af samgönguinnviðum, líkt og vegi og ferjur,“ segir í tilkynningunni.

Eina áætlunarleið félaganna í kjölfarið verður á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði en sá samningur gildir til 31. ágúst.  Á næstu vikum verði sú flugleið boðin út samkvæmt ákvörðun Vegagerðarinnar.

„Eftir því sem best er vitað hyggst Vegagerðin bjóða út áætlunarflug til Húsavíkur og Vestmannaeyja til næstu ára, þrjá mánuði á ári yfir vetrartímann,“ segir í tilkynningunni.

Segir einnig að flugrekendur sem hafi sinnt þjónustu á grundvelli samninga við Vegagerðina hafi lengi bent á að slíkir samningar þurfi að vera til langs tíma og leiða þannig til fyrirsjáanleika hjá notendum og samningsaðilum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert