Svandís verður innviðaráðherra og Bjarkey matvælaráðherra

Ný ríkisstjórn kynnt í Hörpu. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Vinstri …
Ný ríkisstjórn kynnt í Hörpu. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Vinstri grænna, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra og þingmaður Vinstri grænna, verður innviðaráðherra í nýrri ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, tekur við matvælaráðuneytinu af Svandísi.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður flokksins, mun áfram gegna embætti félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Gæti elt Svandísi á milli ráðuneyta

Eins og mbl.is greindi frá í gær þá hefur van­traust­stil­laga á hend­ur Svandísi, sem enn er mat­vælaráðherra, verið lögð fyr­ir Alþingi.

Þetta staðfest­i Inga Sæ­land, formaður Flokks fólks­ins.

„Van­traust­stil­lag­an hef­ur verið skráð inn. Spurn­ing­in er bara hversu hratt Svandís hleyp­ur úr ráðuneyt­inu til að losna við hana,“ seg­ir Inga í sam­tali við mbl.is.


„En stóra spurn­ing­in er hvort ég muni elta hana á milli ráðuneyta.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert