Fjórir menn úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Einstaklingarnir voru allir úrskurðaðir á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Einstaklingarnir voru allir úrskurðaðir á grundvelli rannsóknarhagsmuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Héraðsdómur Suðurlands hefur úrskurðað fjóra menn í gæsluvarðhald, sem grunaðir eru um aðild að manndrápi í sumarhúsi í gær, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.

Tveir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 30. apríl og hinir tveir til 24. apríl. Mennirnir voru allir úrskurðaðir á grundvelli rannsóknarhagsmuna og sæta nú einangrun.

Sumarhúsið í landi Kiðjabergs

Sumarhúsið sem um ræðir er í landi Kiðjabergs í Grímsnesi, en Jón Gunn­ar Þór­halls­son­, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á Suður­landi, staðfesti það í samtali við mbl.is.

Mennirnir eru all­ir af er­lend­um upp­runa en bú­sett­ir hér á landi. Maður­inn sem lést var það einnig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert