Krefjast gæsluvarðhalds yfir fjórum mönnum

Mennirnir eru allir af erlendum uppruna.
Mennirnir eru allir af erlendum uppruna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurlandi hefur krafist gæsluvarðhalds yfir fjórum karlmönnum sem eru grunaðir um aðild að manndrápi í sumarhúsi í uppsveitum Árnessýslu í gær.

Allir af erlendum uppruna

Að sögn Jóns Gunnars Þórhallssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Suðurlandi, eru þeir sem voru handteknir allir af erlendum uppruna en búsettir hér á landi. Maðurinn sem lést var það einnig. 

Grunur vaknaði á vettvangi

„Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum vegna rannsóknar á meintu manndrápi í sumarhúsi í uppsveitum Árnessýslu. Allir sakborningarnir voru handteknir á vettvangi skömmu eftir komu viðbragðsaðila en grunur vaknaði þegar á vettvangi um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti,” segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

„Eins og komið hefur fram barst tilkynning til Neyðarlínu – 112 um meðvitundarleysi rétt fyrir klukkan 14:00 í gær þann 20. apríl. Hinir grunuðu, ásamt hinum látna, eru allir karlmenn af erlendum uppruna.”

Krafan um gæsluvarðahald var tekin fyrir í Héraðsdómi Suðurlands nú fyrir hádegi og má vænta niðurstöðu síðar í dag.

„Rannsókn lögreglu miðar að því að upplýsa um atburðarás á vettvangi og með hvaða hætti andlát mannsins bar að. Vegna rannsóknarhagsmuna getur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu,” segir einnig í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert