Fundur Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs og Rannís um stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði hófst klukkan 10 í morgun.
Á fundinum upplýsa sérfræðingar hjá Rannís um stærri styrktækifæri sem eru í farveginum í mannvirkjaiðnaði, sóknarstyrki og skattafrádrátt vegna rannsókna og nýsköpunar.
„Sérfræðingar í mannvirkjaiðnaði og styrkhafar hjá Aski með þekkingu á stærri styrkumsóknum veita innblástur og innsýn í heim stærri styrktækifæra,“ segir á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, þar sem einnig má nálgast dagskrá fundarins.
Hægt er að fylgjast með beinu streymi hér að neðan: