Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor var samþykktur á fundi Varðar - fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í Valhöll síðdegis í dag. Listann skipa 15 karlar og 15 konur, þar af 5 karlar og 5 konur í 10 efstu sætunum, sem eru skipuð í samræmi við úrslit prófkjörs fyrr í vetur. Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrum borgarstjóri og seðlabankastjóri, skipar heiðurssætið.
Listinn er eftirfarandi:
- Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi
- Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi
- Gísli Marteinn Baldursson, dagskrárgerðarmaður og varaborgarfulltrúi
- Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
- Júlíus Vífill Ingvarsson, lögfræðingur
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, ráðgjafi menntamálaráðherra
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur og varaborgarfulltrúi
- Sif Sigfúsdóttir, MA í mannauðsstjórnun
- Bolli Skúlason Thoroddsen, formaður Heimdallar
- Marta Guðjónsdóttir, kennari við Tjarnarskóla
- Ragnar Sær Ragnarsson, leikskólakennari
- Kristján Guðmundsson, húsasmíðameistari
- Björn Gíslason, slökkviliðsmaður
- Áslaug Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri
- Elínbjörg Magnúsdóttir, sérhæfður fiskvinnslumaður
- Helga Kristín Auðunsdóttir, viðskiptalögfræðingur
- Rúnar Freyr Gíslason, leikari
- Stefanía Katrín Karlsdóttir, viðskiptafræðingur MBA
- Magnús Þór Gylfason, viðskiptafræðingur
- Guðrún P. Ólafsdóttir, viðskiptafræðingur
- Einar Eiríksson, kaupmaður
- Kristinn Vilbergsson, framkvæmdastjóri
- Ágústa Guðmundsdóttir, prófessor
- Sveinn Scheving, öryrki
- Helga Steffensen, brúðuleikari
- Ellen Margrét Ingvadóttir, lögg. dómtúlkur og skjalaþýðandi
- Jóna Gróa Sigurðardóttir, húsmóðir og nemi
- Magnús L. Sveinsson, fyrrverandi fomaður VR
- Inga Jóna Þórðardóttir, viðskiptafræðingur
- Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi seðlabankastjóri.