Ætla að slá skjaldborg um álversframkvæmdir

Framkvæmdir í Helguvík.
Framkvæmdir í Helguvík. mbl.is/RAX

Í hádeginu í dag ætla Suðurnesjamenn að fjölmenna við álversframkvæmdirnar í Helguvík og slá skjaldborg um  álver og atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum, að því er segir í fréttatilkynningu frá Einari Bárðarsyni.

„Þrátt fyrir að  fjárfestingarsamningurinn hafi verið afgreiddur á Alþingi eru ennþá  mál sem þarf samstöðu um í ríkisstjórn. Enn er hætta á að  stjórnmálamenn nái að stöðva álversframkvæmdirnar með ósætti vegna  afgreiðslu umhverfisþátta og hafnarframkvæmda.

Á Suðurnesjum mælist mesta atvinnuleysi á landinu og það er ljóst að  mikil ósamstaða er á milli ríkistjórnarflokkana um þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Helguvík. Miðað við 360 þúsund tonna álver  skapast 1800 vel launuð störf sem eru lífsnauðsynleg fyrir Suðurnesin,"að því er segir í tilkynningu Einars sem  hefur starfað sem aðstoðarmaður Kjartans Ólafssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert