Elsa Lára Arnardóttir skrifstofustjóri leiðir lista Framsóknar og frjálsra í bæjarstjórnarkosningunum á Akranesi í vor. Ragnar Baldvin Sæmundsson verslunarmaður er í 2. sæti og Liv Åse Skarstad húsmóðir í 3. sæti.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Næstu þrjú sæti þar á eftir skipa þau Karitas Jónsdóttir verkefnastjóri, Ole Jakob Volden húsasmiður og Helga Kristín Björgólfsdóttir grunnskólakennari.
Ingibjörg Pálmadóttir sem hefur verið oddviti Framsóknar í bæjarstjórn undanfarið kjörtímabil, skipar nú 18. sæti listans.
Framboðslisti Framsóknar og frjálsra í kosningum til bæjarstjórnar Akraness 2018:
- Elsa Lára Arnardóttir – skrifstofustjóri
- Ragnar Baldvin Sæmundsson – verslunarmaður
- Liv Åse Skarstad - húsmóðir
- Karitas Jónsdóttir – verkefnastjóri
- Ole Jakob Volden – húsasmiður
- Helga Kristín Björgólfsdóttir – grunnskólakennari
- Alma Dögg Sigurvinsdóttir – BA í stjórnmálafræði
- Ellert Jón Björnsson – viðskiptastjóri
- Hilmar Sigvaldason - ferðamálafrömuður
- Anna Þóra Þorgilsdóttir – hjúkrunarfræðingur
- Olga Katrín Davíðsdóttir Skarstad – nemi
- Þröstur Karlsson – sjómaður
- Sigurður Oddsson – vélvirkjanemi
- Maren Rós Steinþórsdóttir – verslunarmaður
- Axel Guðni Sigurðsson – rafvirki
- Guðmundur Páll Jónsson – forstöðumaður
- Björk Elva Jónasdóttir – hjúkrunarfræðingur
- Ingibjörg Pálmadóttir – hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi ráðherra