Kosið er til sveitarstjórna í 71 sveitarfélagi í dag og hafa kjósendur fjölmennt á kjörstaði víða um land, margir hverjir í sínu fínasta pússi. Um 248 þúsund manns eru á kjörskrá.
Kjörsókn er ýmist minni eða meiri samanborið við síðustu sveitarstjórnarkosningar fyrir fjórum árum. Klukkan fimm síðdegis var hún til að mynda meiri í Reykjavík en á sama tíma fyrir fjórum árum en heldur minni á Akureyri og í Reykjanesbæ.
Ljósmyndarar og fréttaritarar mbl.is voru á ferð um landið í dag og komu við á kjörstöðum og í kosningakaffiboðum hjá framboðunum, svo dæmi séu nefnd.
Kjörstöðum verður lokað í síðasta lagi klukkan 22 í kvöld og búast má við fyrstu tölum úr talningu fljótlega eftir það.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins, ræðir við kjósendur í Ráðhúsinu í morgun.
mbl.is/Árni Sæberg
Persónukjör er í Fljótsdal og því voru engin framboð með kosningakaffi. Þessi í stað bauð hreppsnefndin upp á kökur á kjörstað.
mbl.is/Gunnar Gunnarsson
Kjörsókn fór rólega af stað á Sauðárkróki en aðsókn jókst þegar líða tók á daginn.
Ljósmynd/Aðsend
Þjóðlegir gestir í kosningakaffi hjá Í-listanum á Ísafirði.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var léttur á fæti í Ráðhúsinu í dag.
mbl.is/Árni Sæberg
Löggur þurfa líka að kjósa eins og þessar sem greiddu atkvæði á vaktinni í Borgarnesi.
mbl.is/Theodór Kr. Þórðarson
Í-listinn á Ísafirði hélt veglegt kaffiboð fyrir kjósendur.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri Grænna í Reykjavík, kom hjólandi á kjörstað.
mbl.is/Valli
Framsóknarflokkurinn á Ísafirði bauð í kaffi.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Fjölmennt var í kosningakaffi hjá Sjálfstæðisflokknum á Ísafirði.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Björn Hilmarsson oddviti Sjálfstæðsflokksins i Snæfellsbæ ásamt konu sinni Guðríði Þórðardóttir a kjörstað í Ólafsvík í morgun.
mbl.is/Alfons Finnsson
Aldrei fleiri flokkar hafa verið í framboði í sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ frá upphafi. Þeir eru alls átta nú.
mbl.is/Svanhildur Eiríksdóttir