Átta í forvali VG í borginni

Frambjóðendur í efstu þrjú sæti VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar.
Frambjóðendur í efstu þrjú sæti VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Samsett mynd

Átta verða í framboði í rafrænu forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.

Forvalið fer fram daganna 2. til 5. mars. Í forvalinu verður kosið í efstu þrjú sætin á framboðslista Vinstri grænna til borgarstjórnar Reykjavíkur.

Á yfirstandandi kjörtímabili hafa Vinstri græn átt einn fulltrúa í borgarstjórn og starfað í meirihluta með Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn. 

Eftirfarandi framboð bárust:

  • Andrés Skúlason, verkefnastjóri, í 2. sæti.
  • Bryngeir Arnar Bryngeirsson, tóm­stunda- og fé­lags­mála­fræðing­ur og göngu­leiðsögumaður, í 2.-3. sæti.
  • Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur, í 1. sæti.
  • Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi, í 1. sæti.
  • Elínrós Birta Jóns- og Valborgardóttir, sjúkraliði, í 2.-3. sæti.
  • Íris Andrésdóttir, grunnskólakennari, í 2.-3. sæti.
  • Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi, í 1. sæti.
  • Stefán Pálsson, sagnfræðingur, í 2. sæti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert