Heilu hverfin hafa verið jöfnuð við jörðu í sprengjuárásum, fjöldagrafir hafa verið grafnar í sandinn, smitsjúkdómar berast á milli manna og íbúar glíma við hungur. Þetta hafa Palestínumenn mátt þola nú þegar brátt 100 dagar verða liðnir frá því stríðið á Gasa hófst.