Badmintonmeistarinn Broddi Kristjánsson fékk bronsverðlaun í einliðaleik í flokki 60-65 ára á heimsmeistaramóti öldunga í Huelva á Spáni. „Ég er formlega hættur keppni en held áfram að leika mér og það kitlar að taka eitt mót til viðbótar,“ segir kappinn, sem fagnaði 61 árs afmæli sínu í liðinni viku, nokkrum dögum eftir að hafa verið á verðlaunapalli. Meira
Í gær fór fram Pepsi-mótið í borðtennis fram í TBR-íþróttahúsinu þar sem Nevena Tasic úr Víkingi Reykjavík og Norbert Bedö úr KR stóðu uppi sem meistarar í meistaraflokkum kvenna og karla. Meira
Elsa Nielsen og Drífa Harðardóttir TBR/ÍA eru Íslandsmeistarar í tvíliðaleik kvenna í badminton árið 2021 eftir sigur á Örnu Karen Jóhannsdóttur og Sigríði Árnadóttur úr TBR. Meira
Daníel Jóhannesson og Júlíana Karítas Jóhannsdóttir úr TBR eru íslandsmeistarar karla og kvenna í einliðaleik í badminton. Íslandsmótið fór fram í Laugardalnum í dag. Meira
Nevena Tasic úr Víkingi gerði sér lítið fyrir og varð þrefaldur Íslandsmeistari í borðtennis er Íslandsmótið var haldið í TBR-íþróttahúsinu í dag. Meira
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur (TBR) er Íslandsmeistari félagsliða 2021 í badminton í meistaraflokki og mun því keppa fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni félagsliða í Póllandi 21.-25. júní í sumar. TBR vann Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH) í hreinum úrslitaleik 7:1. Meira
Keppt var í karla- og kvennaflokki í borðtennis á Reykjavíkurleikunum í dag en keppendur komu frá fjórum löndum. Mótið fór fram í TBR-íþróttahúsinu í Laugardal í umsjón borðtennisdeildar Víkings. 23 leikmenn léku í karlaflokki og 10 leikmenn í kvennaflokki og léku góðir gestir á mótinu frá Póllandi, Litháen og Serbíu. Meira
Sjö greinar fara fram í dag á Reykjavíkurleikunum, streymt verður frá fjórum þeirra. Í dag hefst keppni í listskautum, hermiakstri og pílukasti, en úrslit munu ráðast í júdó, borðtennis, skylmingum og enduro-hjólreiðakeppninni. Meira
Kári Gunnarsson og Margrét Jóhannsdóttir vörðu titla sína sem Íslandsmeistarar í einliðaleik í badminton á Íslandsmótinu sem lauk í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Meira
Íslandsmótið í badminton hefst í dag í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og lýkur þar síðdegis á sunnudaginn með úrslitaleikjum. Meira
Badmintonfélag Hafnarfjarðar varð um helgina Íslandsmeistari í liðakeppni í fyrsta sinn og var það sömuleiðis í fyrsta skipti sem lið TBR vinnur ekki þennan titil frá því að meistaradeildin var stofnuð. BH mun því leika í Evrópukeppni félagsliða í Póllandi 23.-27. júní næstkomandi. Einnig sigraði lið BH í A- og B-deild. Er BH þar með Íslandsmeistari í öllum deildum. Meira
Á Reykjavíkurleikunum um helgina var keppt í fjölmörgum flokkum í badminton unglinga. Alls voru 158 keppendur skráðir til þátttöku, þar af voru 48 frá Færeyjum. Með keppendunum frá Færeyjum kom hópur af þjálfurum, fararstjórum og foreldrum og var heildarfjöldi hópsins því yfir 100 manns. Færeyingar hafa verið duglegir að taka þátt í þessu móti og í ár var engin undantekning. Meira
Þrettándu Reykjavíkurleikarnir hófust 23. janúar en þeim lýkur í dag 2. febrúar. Keppt verður í sex íþróttagreinum í dag, badminton unglinga, frjálsíþróttum, keilu, rafíþróttum, skotfimi og taekwondo. Í kvöld klukkan 19-21 verður svo lokahátíð í Laugardalshöll þar sem besta íþróttafólkið í þeim greinum sem keppt var í um helgina fær viðurkenningar. Meira
Seinni keppnishelgi 13. Reykjavíkurleikanna stendur nú sem hæst og eru sjö greinar á dagskrá leikanna í dag. Keppni hefst í badminton unglinga, rafíþróttum og skotfimi. Þá munu úrslit ráðast í crossfit, hermiakstri og skvassi auk þess sem það skýrist hverjir komast áfram í úrslitakeppnina í keilu. Meira
Badmintonkeppni Reykjavíkurleikanna, RSL Iceland International, lauk fyrir stundu í TBR-húsunum við Gnoðarvog. Keppnin hófst á fimmtudag og fór heldur brösuglega af stað þar sem margir erlendir keppendur þurftu að boða forföll vegna þess að flug þeirra var fellt niður. Meira
Eitt íslenskt par náði að tryggja sér sæti í úrslitum badmintonkeppni Reykjavíkurleikanna, RSL Iceland International en það voru þeir Kári Gunnarson og Davíð Bjarni Björnsson í tvíliðaleik karla. Meira
Borðtennismót Reykjavíkurleikanna fór fram í TBR-íþróttahúsinu í Laugardal í gær í umsjón borðtennisdeildar Víkings. Keppt var í karla- og kvennaflokki en 20 karlar og átta konur mættu til leiks, þar á meðal gestir frá Grænlandi, Serbíu, Slóvakíu og Litháen. Meira
Í dag verður keppt í sjö íþróttagreinum á Reykjavíkurleikunum. Í kvöld verður svo blásið til veislu í Laugardalshöll þar sem besta íþróttafólkið í þeim íþróttagreinum sem keppt var í um helgina fær verðlaun. Meira
Þrjú íslensk pör eru komin í undanúrslit á RSL Iceland International-badmintonmótinu sem fer fram í TBR-húsunum um helgina og er hluti af Reykjavíkurleikunum. Mótið gefur stig á heimslista og er á Evrópumótaröðinni. Meira
Keppni á Reykjavíkurleikunum er nú í fullum gangi en keppt er í níu greinum á leikunum í dag. Þau sem ekki komast á keppnisstaðina til að fylgjast með geta nýtt sér það að nokkrar greinar verða í beinni útsendingu á vefnum. Meira