Stjórnvöld í Ekvador hafa veitt Julian Assange, stofnanda Wikileaks, ríkisborgararétt í landinu. Assange hefur dvalið í sendiráði Ekvador í London í fimm ár. Maria Fernanda Espinosa, utanríkisráðherra Ekvador, segir að með því að veita honum ríkisborgararétt 12. desember síðastliðinn vonuðust yfirvöld í Ekvador til þess að Assange yrði gerður að erindreka ríkisins og gæti þannig yfirgefið sendiráðið án þess að verða handtekinn.