Sjóliðshermenn frá Bandaríkjunum og Taílandi drukku snákablóð og borðuðu sporðdreka á meðan á árlegu sjálfsbjargar-verkefni þeirra stóð í Taílandi. Verkefnið var hluti af Cobra Gold-stríðsleikunum sem voru haldnir í 37. sinn. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hermennina spreyta sig.