Veðrið hefur gert mörgum lífið leitt í dag. Fjölmargir ferðamenn eru staddir á landinu og þeir létu rok og rigningu ekki stöðva sig í að skoða sig um í bænum. Mæðgurnar Patricia Schaeffer og Dana McDonald eru í heimsókn frá Boston og þær segja veðrið ekki hafa haft mikil áhrif á ferðalagið.