13 manns hið minnsta hafa farist í skyndiflóðum í Aude-héraðinu í suðvesturhluta Frakklands. Héraðsyfirvöld segja nokkurra mánaða úrkomu hafa fallið á nokkrum klukkutímum í nótt með þeim afleiðingum að íbúar eru sumir strandaglópar á húsþökum og vegir eru nú víða ófærir.