„Ég ætlaði að stappa í hann stálinu,“ segir Kjartan Björnsson, sem kom fljótt á vettvang í eldsvoðanum á Selfossi í gær, hann ólst upp í húsinu á móti og húsráðandi í húsinu sem brann er æskuvinur hans og ræddust þeir stuttlega við. Hann segir hafa verið dapurlegt að koma að húsinu í ljósum logum.