Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ljóst að einbreiðar brýr séu sérstakt vandamál í vegakerfi þjóðarinnar. Sérstaklega hafi verið rætt um þær í tengslum við samgönguáætlun sem nú sé til meðferðar í þinginu. Ekki liggi þó fyrir að fundað verði sérstaklega um atburði gærdagsins.