Mikil sorg ríkir í Póllandi í kjölfar dauða Pawel Adamowicz, borgarstjóra Gdansk. Adamowicz var ungur er hann hóf afskipti af stjórnmálum og átti þátt í að skipuleggja stúdentamótmæli árið áður en kommúnistastjórnin féll. Hann var heiðraður af páfa og virtur af hinsegin fólki.