Undanfarið hafa verslunareigendur kannað sín í milli afstöðu til lokana á Laugavegi, Skólavörðustíg og í Bankastræti. Yfirgnæfandi meirihluti segist andvígur algerum lokunum á götunum. Niðurstöðurnar voru kynntar í dag á miklum hitafundi þar sem fólk gerði athugasemdir við framkvæmd könnunarinnar.