Hatari vakti mikla athygli á rauða dregilinn í miðborg Tel Aviv, þar sem formleg kynningarathöfn á sér nú stað. Vildu flestir fjölmiðlar ná tali af Hatara og ljóst var að sveitin var með þeim vinsælli sem mættu á dregilinn. Kynnar keppninnar vöruðu börn og grænmetisætur sérstaklega við bandinu.