Lögregla í Hong Kong gerði áhlaup á lestarstöðvar í borginni í gær og beitti táragasi til að reyna að koma mótmælendum þaðan út. Myndbandsupptaka frá Tai Koo-lestarstöðinni sýnir lögreglumenn skjóta gúmmíkúlum á fólk úr návígi og berja fólk með kylfum í rúllustiga lestarstöðvarinnar.