Búið er að koma myndarlegu trölli fyrir í Elliðaárdalnum skammt frá Búrfossi sem er vinsælt útivistarsvæði á heitum sumardögum. Hægt er að ganga inn í höfuð tröllsins og hefur yngsta kynslóðin nýtt sér aðstöðuna til fataskipta eftir að hafa dýft sér í ána. Verkið nefnist Galop náttúrunnar.