Fjögurra ára gamalt barn lést í mótmælum í Síle í dag. Átök hafa staðið yfir víðs vegar í landinu frá því á föstudag vegna hækkaðs verðs á lestarmiðum. Hækkunin var dregin til baka en það dugði ekki til og hefur almenningur síðan mótmælt lágum launum, misskiptingu og spillingu.