Ný íslensk tækni í álframleiðslu sem gefur frá sér súrefni í stað koltvísýrings gefur vonir um að hægt sé að eyða koltvísýringsmengun úr ferlinu við framleiðslu á áli. Fyrirtækið Arctus Metals framleiddi á dögunum ál með þessum hætti í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands.