Fjöldi fólks kom saman við listasafn í Tókíó aðfaranótt föstudags í þeim tilgangi að stela þaðan listaverkum. Lögreglan var á svæðinu en aðhafðist þó ekkert enda var gjörningurinn löglegur. Listasafnið hafði boðað til sérstakrar sýningar þar sem öll listaverkin voru föl þeim sem gætu stolið þeim.