Apple kynnti fyrir skömmu nýja kynslóð iPhone 12 snjallsímanna, sem hafa 5G tækni og OLED-skjái. Þeir verða í fjórum stærðum og gerðum, en vegna faraldursins eru þessir nýju símar óvenjuseint á ferðinni. Þeirra er að vænta hér á landi í lok mánaðarins.