Þrátt fyrir fjölgun kórónuveirugreininga í Dubai hafa yfirvöld í furstadæminu brugðist við ástandinu í heiminum með því að bjóða ferðamenn velkomna. Efnahagurinn reiðir sig á ferðamennsku og því hefur sóttkvíarlaus ferð til Dubai verið markaðssett í löndum þar sem ströng útgöngubönn eru í gildi.