„Að klífa K2 að vetrarlagi var mikil áskorun. Ég trúi því staðfastlega að afrek á slíkum skala séu ekki möguleg ef þú hefur ekki tilgang eða ef eina markmið þitt er að hljóta frægð,“ þannig hefst færsla nepalska fjallgöngumannsins Nirmal Purja sem varð um helgina, ásamt teymi sínu, fyrstur til að klífa fjallið K2 að vetrarlagi.