Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) spáir því að viðspyrna hagkerfa heimsins verði meiri en áður var talið. Hagvöxtur á heimsvísu er sagður munu vera um 6% í ár eftir að hafa dregist saman um 3,3% árið 2020 vegna heimsfaraldursins. Hins vegar segir AGS að betur megi ef duga skuli, frekari batamerki þurfi að sjást svo hagkerfi heimsins bíði ekki varanlegan skaða.