Vefmyndavél mbl.is í Geldingadölum náði myndum af því þegar ný sprunga myndaðist á gosstöðvunum skömmu eftir miðnætti. Í þessu myndskeiði, sem búið er að hraða á, sést þróun hraunflæðisins vel í alla nótt þar til vélin hætti að senda út þar sem hraunið fór yfir rafmagnskapal.