Heimili Gerðar Huldar Arinbjarnardóttur býr yfir ríkri sögu. Hún er búin að búa lengi í húsinu en foreldrar hennar byggðu það. Fyrst eignaðist hún íbúðina á neðri hæðinni en smám saman hefur hún eignast meira og meira í húsinu. Nú býr hún á efri hæðinni en faðir hennar á þeirri neðri.