Fyrr á árinu kom út fræðiritið Íslenskar bókmenntir: Saga og samhengi, sem hugsað er sem kennslurit. Í bókinni er íslensk bókmenntasaga rakin í stuttum og hnitmiðuðum köflum, til að vekja áhuga ungs fólks á íslenskum bókmenntum, að sögn Ástu Kristínar Benediktsdóttur, eins höfunda bókarinnar.