Íslensk-kúbverski fjallagarpurinn Yandy Núñez Martinez lét langþráðan draum rætast þegar hann náði á topp Everest-fjalls í síðustu viku. Hann er fyrsti Kúbverjinn til þess að klífa þetta hæsta fjall heims og tileinkaði afrekið öllum þeim sem búið hafa við kúgun ríkisstjórnar í heimalandi sínu. Hann segir alls ekki sjálfsagt að hafa frelsi til þess að láta drauma sína rætast.