Það var heldur óvenjulegt flugið frá Kaupmannahöfn til Íslands í gær, óvenjulegt fyrir þær sakir að farþegum var boðið upp á skemmtiatriði um borð. Sniglabandið fagnar um þessar mundir 25 ára afmæli sínu en af því tilefni bauð Iceland Express hljómsveitinni til Köben til að spila fyrir farþega.